HK knúði fram sigur á Akureyri

Tandri Konráðsson úr HK og Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri, eigast við. stækka

Tandri Konráðsson úr HK og Guðmundur Hólmar Helgason, Akureyri, eigast við. mbl.is/Golli

mbl.is Andri Yrkill Valsson, sport@mbl.is

HK sigraði Akureyri, 27:25,  í 13. umferð úrvalsdeildar karla í handknattleik, N1-deildinni, í Höllinni á  Akureyri í kvöld. HK er þá komið með 17 stig og er í öðru sæti sem stendur en Akureyri er með 14 stig í sjötta sætinu.

HK virtist með sigurinn í höndunum, var 25:19 yfir þegar 12 mínútur voru eftir. Þá  skoraði Akureyri sex mörk í röð og jafnaði í 25:25, tveimur mínútum fyrir leikslok. Vilhelm Gauti Bergsveinsson kom HK yfir á ný og Bjarki Már Elísson tryggði sigurinn í lokin.

Bjarki Már, Tandri Konráðsson og Ólafur Bjarki Ragnarsson skoruðu 5 mörk hver fyrir HK en Bjarni Fritzson gerði 9 mörk fyrir Akureyringa.

Lið Akureyrar: Sveinbjörn Pétursson, Stefán Guðnason -- Geir Guðmundsson, Bjarni Fritzson, Guðmundur Hólmar Helgason, Guðlaugur Arnarsson, Jón Heiðar Sigurðsson, Heimir Örn Árnason, Oddur Gretarsson, Bergvin Þór Gíslason, Daníel Örn Einarsson, Halldór Tryggvason, Hörður Fannar Sigþórsson, Heiðar Þór Aðalsteinsson.

Lið HK: Björn Ingi Friðþjófsson, Arnór Freyr Stefánsson -- Bjarki Már Gunnarsson, Björn Þórsson Björnsson, Bjarki Már Elísson, Tandri Már Konráðsson, Leo SNær Pétursson, Ólafur Bjarki Ragnarsson, Atli Ævar Ingólfsson, Garðar Svansson, Daníel Berg Grétarsson, Sigurjón Friðbjörn Björnsson, Vilhelm Gauti Bergsveinsson, Atli Karl Bachmann

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is