Kristján: Við vorum ryðgaðir

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Kristján Arason þjálfari FH viðurkenndi að leikmenn sínir hefðu greinilega verið ryðgaðir eftir rúmlega mánaðar frí vegna EM þegar liðið tók á móti Aftureldingu í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. FH hafði nauman fjögra marka sigur 24:20 en fátt benti til þess í hálfleik. 

Gestirnir úr Mosfellsbænum stjórnuðu ferðinni allt þangað til um miðjan síðari hálfleik þegar FH náði fyrst frumkvæðinu.

Kristján sagði að viljinn hafi verið til staðar og að um leið og vörnin hafi farið að virka í seinni hálfleik hefði björninn svo gott sem verið unninn.

FH færðist nær grönnum sínum í Haukum sem töpuðu fyrir Val í kvöld. Kristjáni fannst það ekkert verra en sagði þá jafnframt hugsa fyrst og fremst um sinn leik og að bæta hann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is