Magnús: Hættur en tek dótið með

Varnarmenn Gróttu stöðva hér Sigurð Eggertsson úr Fram þegar liðin mættust í Safamýri í kvöld. stækka

Varnarmenn Gróttu stöðva hér Sigurð Eggertsson úr Fram þegar liðin mættust í Safamýri í kvöld. mbl.is/Golli

„Ég er nánast hættur í markinu, er svona þriðja hjólið með þjálfaranum en er alltaf með dótið með ef það klikkar eitthvað í upphitun“,  sagði Magnús Sigmundsson markvörður Gróttu, sem tók stöðu þjálfara gegn Fram í Safamýrinni í kvöld, þar sem þjálfarinn Guðfinnur Kristmannsson tók út leikbann.  Magnús þurfti að sætta sig við 23:21 tap.

„Ég er sáttur við vörn og hugarfar minna manna, þeir spiluðu með hjartanu og gáfu allt sitt í leikinn en sóknarleikurinn var of brokkgengur.  Við setjum stöðuna upp þannig núna að þetta sé nýtt mót fyrir okkur og menn verða að læra eitthvað af því.  Við misstum nokkra menn fyrir tímabilið og þessir strákar sem eru að spila núna eru að læra og fá reynslu en menn læra ekki allt um efstu deildina á einum vetri.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is