Ná Valsmenn að koma fram hefndum?
Eftir eins og hálfs mánaðar hlé vegna Evrópumótsins í Serbíu verður þráðurinn tekinn upp að nýju í N1-deild karla í handknattleik í kvöld en þá verður leikin heil umferð í deildinni.
Haukar tróna á toppi deildarinnar með 20 stig eftir 12 leiki en þeir hafa 5 stiga forskot á Íslandsmeistara FH og HK og stigi á eftir koma svo Fram og Akureyri. Valsmenn koma svo í sjötta sætinu með 11 stig og fram undan er hörð keppni um að komast í úrslitakeppnina en fjögur efstu liðin eftir 21 leik taka þátt í henni.
Haukar sækja bræður sína í Val heim á Hlíðarenda í kvöld og ætli Valsmenn sér að blanda sér í baráttuna um að komast í úrslitakeppnina veitir þeim ekki af stigum. Valsmenn hljóta að vilja hefna ófaranna frá því í desember en þá töpuðu þeir með 11 marka mun á heimavelli fyrir Haukunum í 8-liða úrslitum bikarkeppninnar.
Stórleikur fer fram norðan heiða en á Akureyri mætast heimamenn og HK. Eftir slaka byrjun á mótinu náðu Akureyringar að rétta verulega úr kútnum áður en hlé var gert á deildinni og þeir eru nú aðeins stigi á eftir HK og FH sem eru í 2.-3. sæti deildarinnar. Það má reikna með hörkuleik enda HK-liðið vel mannað með landsliðsmanninn Ólaf Bjarka Ragnarsson í broddi fylkingar sem og markahæsta leikmann deildarinnar, Bjarka Má Elísson.
Í Kaplakrika eigast við Íslandsmeistarar FH og Afturelding. FH-ingar hafa verið brokkgengir í vetur en meiðsli hafa verið að hrjá meistarana í vetur. Mosfellingar, sem eru í næst neðsta sæti deildarinnar, hafa af og til sýnt fína takta og hafa á stundum staðið vel uppi í hárinu á bestu liðum deildarinnar.
í Safamýri leika Fram og Grótta. Gróttumenn bíða enn eftir fyrsta sigri sínum í deildinni á tímabilinu en uppskera Seltirninga er aðeins 1 stig sem þeir fengu gegn Val í fyrstu umferðinni. Framarar eru fjórða sæti deildarinnar með 14 stig. Þeir hófu tímabilið með látum og unnu fjóra fyrstu leiki sína en hafa verið mjög sveiflukenndir eftir það og töpuðu til að mynda á heimavelli fyrir Aftureldingu.
Leikir kvöldsins:
19.00 Akureyri - HK
19.30 Fram - Grótta
19.30 FH - Afturelding
19.30 Valur - Haukar






