Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 2.2.2012
| 22:42
Örn Ingi: Gífurlegur karakter
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.isÖrn Ingi Bjarkason var markahæstur hjá FH sem vann Aftureldingu 24:20 í N1-deild karla í handknattleik. Hann sagði liðið hafa sýnt mikla baráttu þegar það snéri stöðunni sér í vil þegar um 10 mínútur voru eftir af hálfleiknum.
Hann sagði Aftureldingu ekki hafa komið þeim neitt á óvart, þeir hefðu vitað að Afturelding væri með gott lið og að þá mætti ekki vanmeta.
Örn var bjartsýnn á framhaldið eftir að hafa unnið tvö stig gegn Aftureldingu í kvöld en hvergi mætti slaka á.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






