Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 2.2.2012
| 22:34
Reynir Þór: FH lá vel við höggi
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.isReynir Þór Reynisson var ánægður með frammistöðu sinna manna í Aftureldingu sem þó tapaði fyrir FH 24:20 í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Afturelding hafði frumkvæðið fram undir miðjan síðari hálfleik en þá var eins og allt færi í baklás.
„Okkur vantaði trúna,“ sagði Reynir og bætti við; „FH-ingarnir lágu vel við höggu í kvöld.“
Þjálfarinn sagði liðið hafa æft vel í janúar og að það væru góð teikn á lofti að fara burt úr Kaplakrika svekktur yfir því að hafa ekki unnið FH.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






