Íþróttir
|
Handbolti
| Morgunblaðið
| 2.2.2012
| 7:07
Tveir stórir til Hamborgar?
Kiril Lazarov, stórskyttan frá Makedóníu, gæti verið á leið til Hamburg í Þýskalandi að þessu keppnistímabili loknu. Ekki nóg með það, heldur gæti þjálfari hans hjá Atlético Madrid á Spáni, hinn gamalkunni Talant Dujshebaev, tekið við stjórn þýska liðsins.
Þetta kom fram í fjölmiðlum í Makedóníu í gær. Per Carlén var rekinn úr starfi þjálfara Hamburg fyrr í vetur. Lazarov varð markahæsti leikmaðurinn á EM í Serbíu og skoraði 61 mark, sem er markamet í Evrópukeppninni.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






