Valsmenn þriðju til að vinna Hauka

Nemanja Malovic reynir skot að marki Vals í leik fyrr í vetur. stækka

Nemanja Malovic reynir skot að marki Vals í leik fyrr í vetur. mbl.is/Ómar

Valsmenn urðu í kvöld þriðja liðið til að leggja topplið Hauka að velli í N1-deild karla í handknattleik á þessari leiktíð þegar þeir unnu öruggan sigur á heimavelli, 25:18.

Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.

60. Leik lokið. Valsmenn sigldu öruggum sigri í höfn, 25:18.

55. Sveinn Þorgeirsson Haukamaður fékk brottvísun og Freyr Brynjarsson samherji hans hálfri mínútu síðar fyrir kjaftbrúk. Valur er fimm mörkum yfir, 22:17, og fimm mínútur eftir. Heimamenn geta nánast byrjað að fagna. Nánast.

50. Valsmenn fara með fjögurra marka forskot inn í síðustu tíu mínúturnar, 20:16. Gullið tækifæri til að verða þriðja liðið til að vinna Hauka í vetur.

45. Valsmenn fengu tækifæri til að komast fjórum mörkum yfir en nú var Stefán Rafn Sigurmannsson að minnka muninn í eitt mark, 16:15, með sínu öðru marki.

40. Sturla Ásgeirsson var að koma Val þremur mörkum yfir, 15:12, og hefur munurinn á liðunum ekki verið meiri í leiknum. Sigfús Sigurðsson er kominn inn á í vörn Vals og byrjaði á að verja skot Tjörva.

35. Líkt og í fyrri hálfleik byrja Valsmenn aðeins betur og var Finnur Ingi Stefánsson að koma þeim í 11:9 með frábæru undirhandarskoti. Hans fjórða mark.

30. Hálfleikur. Liðunum hefur gengið bölvanlega að skora mörk í þessum fyrri hálfleik en Valur skoraði tvö þau síðustu og jafnaði metin í 8:8. Heimir Óli fékk dauðafæri á línunni í lokasókn hálfleiksins en skaut í þverslá. Freyr Brynjarsson er markahæstur Hauka með 4 mörk en þeir Þórður Rafn Guðmundsson, Nemanja Malovic, Heimir Óli Heimisson og Gylfi Gylfason hafa skorað eitt mark hver. Finnur Ingi Stefánsson og Anton Rúnarsson hafa skorað 3 mörk hvor fyrir Val og Sturla Ásgeirsson rest. Aron Rafn varði 8 skot í marki Hauka og Hlynur Morthens 5 fyrir Val.

26. Haukar komust yfir í fyrsta sinn eftir nákvæmlega 23 mínútna leik og er staðan nú 8:6 þeim í vil. Valsmenn voru að taka leikhlé enda ekki búnir að skora í drjúgan tíma.

20. Freyr Brynjarsson heur verið að læða sér svolítið í „holu“ inni á línunni og er kominn með þrjú mörk fyrir Hauka sem voru að jafna, 6:6, með fyrsta marki Gylfa Gylfasonar úr hægra horninu.

15. Það er búið að vera nóg um mistök í sóknarleik beggja liða eins og er kannski eðlilegt eftir langt hlé. Magnús Einarsson var að fá fyrstu brottvísun leiksins en Valsmenn leiða enn, 4:3. Anton Rúnarsson var að skora sitt þriðja mark fyrir þá.

10. Nú er Haukavörnin sem skilað hefur svo mörgum sigrum í vetur hrokkin í gang og landsliðsmarkvörðurinn Aron Rafn Eðvarðsson var auk þess að verja víti frá Sturlu. Haukar eru búnir að jafna metin í 2:2.

5. Haukar eiga enn eftir að komast á blað. Gylfi Gylfason var að þruma í þverslána úr vítakasti. Sturla Ásgeirsson og Anton Rúnarsson hafa hins vegar skorað fyrir heimamenn sem eru 2:0 yfir. Það er fámennt en góðmennt á áhorfendapöllunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is