AG á að verða Evrópumeistari árið 2013
Danski skartgripasalinn Jesper „Kasi“ Nielsen, eigandi danska meistaraliðsins AG Köbenhavn, sem fjórir Íslendingar leika með, segir að næsta ár muni liðið fara með sigur af hólmi í Meistaradeildinni.
„Mér sýnist að leikmenn úr AG Köbenhavn hafi gert það sérlega gott á Evrópumótinu í Serbíu og það er ljóst að AG er eitt af bestu liðum í heimi. Það heyrði ég frá mönnum sem voru á Evrópumótinu og það er borin mikil virðing fyrir okkar liði,“ sagði Nielsen í viðali við danska blaðið Berlingske Tidende.
Sex leikmenn frá AG tóku þátt í EM. Mikkel Hansen og bræðurnir Rene Toft og Henrik Toft Hansen voru í Evrópumeistaraliði Dana, Nicklas Ekberg var í liði Svía og þeir Guðjón Valur og Arnór með Íslendingum.
„Við erum að búa til lið sem við með réttu getum sett það markmið að vinna Meistaradeildina árið 2013,“ segir eigandinn litríki.
AG Köbenhavn, með Snorra Stein Guðjónsson, Arnór Atlason, Guðjón Val Sigurðsson og Ólaf Stefánsson innanborðs, er komið í 16-liða úrslit í Meistaradeildinni, er í efsta sæti í deildinni og leikur um helgina til úrslita í bikarkeppninni ásamt þremur öðrum liðum.
„Við höfum sagt að markmiðið í ár sé að komast í undanúrslitin í Meistaradeildinni en við getum alveg orðið Evrópumeistarar í ár. Takist okkur að komast í undanúrslitin getur við unnið alla mótherja okkar en við getum líka tapað fyrir þeim öllum. Við erum með besta markvarðapar í heimi, við erum með Ólaf Stefánsson sem þekkir vart annað en að spila til úrslita í Meistaradeildinni, við höfum fljóta og góða hornamenn, góðar skyttur með hinn frábæra Mikkel Hansen í broddi fylkingar og hörkugóða varnarmenn sem eru Joachim Boldsen og Lars Jørgensen. Þetta er ekkert slor,“ segir Nielsen.
gummih@mbl.is






