Lindberg ekki með í Stjörnuleiknum vegna meiðsla

Hans Lindberg verður að láta sér nægja að horfa á Stjörnuleikinn að þessu sinni. stækka

Hans Lindberg verður að láta sér nægja að horfa á Stjörnuleikinn að þessu sinni. Reuters

Hans Lindberg, hægri hornamaður danska landsliðsins í handknattleik og þýska 1. deildar liðsins Hamburg, er meiddur og verður því ekki með í Stjörnuleiknum sem er árviss viðburður í þýska handboltanum. Meiðslin eru auðvitað slæm tíðindi fyrir Hamburg en útiloka einnig þátttöku hans í Stjörnuleiknum sem fer fram á morgun.

Lindberg er meiddur í baki eftir Evrópumótið í Serbíu þar sem Danir urðu eins og kunnugt er Evrópumeistarar. Óvíst er hvað hornamaðurinn verður lengi frá en hann segir leiðinlegt að geta ekki tekið þátt í leiknum á morgun. „Það er alltaf gaman að spila í Stjörnuleiknum. Sérstaklega þar sem allir koma saman.“

Lærisveinn Dags Sigurðssonar hjá Fücshe Berlín, Mark Richwien var valinn í stað Lindbergs. 

Þýska landsliðið mætir úrvalsliðinu sem er stjórnað af þeim Alfreð Gíslasyni, þjálfara Kiel, og Jan Gorr, þjálfara Hüttenberg. Eini Íslendingurinn í liðinu er Alexander Petersson.

Úrvalsliðið er þannig skipað:

(nafn, lið, þjóðerni)

Mark:
Goran Stojanović (Rhein-Neckar Löwen, Svartfjallaland)
Mattias Andersson (SG Flensburg-Handewitt, Svíþjóð)
Thierry Omeyer (THW Kiel, Frakkland)

Vinstra horn:
Ivan Nincevic (Füchse Berlin, Króatía)
Kevin Schmidt (HSG Wetzlar, Þýskaland)
Anders Eggert (SG Flensburg-Handewitt, Danmörk)

Vinstri skytta:
Drago Vukovic (TuS N-Lübbecke, Króatía)
Matthias Gerlich (TV Hüttenberg, Þýskaland)
Filip Jicha (THW Kiel, Tékkland)

Miðja:
Domagoj Duvnjak (HSV Hamburg, Króatía)
Daniel Narcisse (THW Kiel, Frakkland)
Bartlomiej Jaszka (Füchse Berlin, Pólland)

Hægri skytta:
Alexander Petersson (Füchse Berlin, Ísland)
Kim Andersson (THW Kiel, Svíþjóð)
Krystztof Lijewski (Rhein-Neckar Löwen, Pólland)

Hægra horn:
Mark Richwien (Füchse Berlin, Þýskaland)
Robert Weber (SC Magdeburg. Austurríki)
Vedran Zrnic (VfL Gummersbach, Króatía)

Línumenn:
Bertrand Gille (HSV Hamburg, Frakkland)
Bartosz Jurecki (SC Magdeburg, Pólland)
Marcus Ahlm (THW Kiel, Svíþjóð)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is