Munaði 20 mörkum á Fram og FH
Úr fyrri leik liðanna í vetur, Elísabet Gunnarsdóttir og Sigrún Jóhannsdóttir úr FH til hægri á myndinni og Ásta Birna Gunnarsdóttir Fram lengst til vinstri.. mbl.is/Steinn Vignir
Fram hafði mikla yfirburði gegn FH í N1-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Liðin mættust á heimavelli Fram í Safamýrinni og það var fljótt ljóst í hvað stefndi. Staðan í hálfleik var 16:8 og eftir 60 mínútur var staðan 35:15.
Fram er eftir sigurinn með 18 stig á toppi deildarinnar en Valur sem er með 16 í 2. sæti á leik til góða.
Markahæstar í liði Fram voru Elísabet Gunnarsdóttir sem skoraði 10 mörk og Sunna Jónsdóttir kom næst henni með sjö. Hjá FH voru Steinunn Snorradóttir, Kristrún Steinþórsdóttir og Ingibjörg Pálmadóttir allar með þrjú mörk.






