Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 4.2.2012
| 18:14
| Uppfært
5.2.2012
18:47
KA/Þór með óvæntan sigur á HK
KA/Þór gerði sér lítið fyrir og vann HK afar óvænt á Akureyri í dag í N1-deild kvenna í handknattleik, 23:22. Þetta var annar sigur KA/Þórs í vetur og með honum komst liðið úr botnsætinu.
Norðankonur eru nú með 4 stig og eiga leik til góða við Stjörnuna á liðin í kringum sig. Grótta er með 5 stig og Haukar 6 en FH er á botninum með 3 stig. HK er hins vegar í 3.-4. sæti ásamt ÍBV með 12 stig.
Kolbrún Einarsdóttir var markahæst hjá KA/Þór með 7 mörk en Brynja Magnúsdóttir skoraði 5 mörk fyrir HK.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






