Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 4.2.2012
| 16:38
Selfoss hafði betur gegn ÍBV
Selfyssingar unnu í dag góðan eins marks sigur á ÍBV í 1. deild karla í handknattleik, 21:20. Staðan í hálfleik var 10:7 gestunum frá Vestmannaeyjum í vil.
Tapið gerir ÍBV enn erfiðara fyrir í baráttunni um að komast upp í úrvalsdeild en liðið er nú með 14 stig líkt og Stjarnan í 3.-4. sæti og á Stjarnan leik til góða. Selfoss er með 9 stig í 5. sæti.
Matthías Örn Halldórsson var markahæstur Selfyssinga með 8 mörk en Sigurður Bragason, Magnús Stefánsson og Andri Heimir Friðriksson skoruðu 4 mörk hver fyrir ÍBV.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






