AG Kaupmannahöfn varði bikarinn

Guðjón Valur Sigurðsson. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson. www.agkbh.dk

Íslendingaliðið AG Kaupmannahöfn varði bikarmeistaratitil sinn í danska handboltanum í dag með sigri á Álaborg í úrslitaleik frammi fyrir tæplega fjögur þúsund áhorfendum. 

AG sigraði 32:26 og hafði yfir 15:11 að loknum fyrri hálfleik. 

Íslensku landsliðsmennirnir Arnór Atlason, Guðjón Valur Sigurðsson, Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson leika með AG.

Íslensku strákarnir gerðu sér lítið fyrir og skoruðu helming marka AG, Guðjón Valur skoraði átta, Ólafur 5 og Arnór þrjú. Snorri Steinn komst ekki á blað en hann og Arnór skiptu með sér hlutverkinu á miðjunni.

Rætt er við Arnór Atlason fyrirliða AG í 8-síðna íþróttablaði Morgunblaðsins sem kemur út á morgun, mánudag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is