Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 5.2.2012
| 16:23
Ingvar og Jónas dæma úrslitaleikinn í Asíu
Handknattleiksdómararnir Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson munu í dag dæma úrslitaleikinn á Asíumeistaramótinu en þar eigast við Suður-Kórea og Katar.
Þeir félagar hafa dæmt á mótinu og fengið góðar umsagnir fyrir sína frammistöðu.
Japan og Sádi-Arabía leika um bronsverðlaun í mótinu. Úrslitaleikurinn hefst klukkan 16 og hægt er að fylgjast með honum á meðfylgjandi slóð.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







