Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 6.2.2012
| 7:43
| Uppfært
19:07
Gensheimer bestur í Þýskalandi
Uwe Gensheimer, hornamaður Rhein-Neckar Löwen og þýska landsliðsins, hefur verið kjörinn handknattleiksmaður ársins 2011 í Þýskalandi í kosningu tímaritsins Handball-Woche.
Gensheimer fékk 7.209 atkvæði en Filip Jicha, Tékkinn öflugi hjá Kiel sem vann þessa kosningu 2009 og 2010, varð annar með 6.226 atkvæði. Þriðji varð síðan Christian Zeitz, örvhenta skyttan hjá Kiel, með 5.426 atkvæði.
Heildarniðurstöður verða síðan birtar á morgun þegar næsta eintak af Handball Woche kemur út.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






