Kári fær aukna samkeppni

Andrei Klimovets t.h. í baráttu við Ólaf Stefánsson í landsleik fyrir nokkrum árum. stækka

Andrei Klimovets t.h. í baráttu við Ólaf Stefánsson í landsleik fyrir nokkrum árum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Kári Kristján Kristjánsson, landsliðsmaður í handknattleik, mun eflaust fá aukna samkeppni um línumannsstöðuna hjá þýska 1. deildar liðinu Wetzlar eftir að liðið gerði skammtímasamning við Andrei Klimovets.

Klimovets, sem er 37 ára gamall, hefur verið án samnings allt þetta keppnistímabil. Hann hefur æft með Wetzlar síðustu vikur og hefur nú skrifað undir samning við liðið um að leika með því út þetta keppnistímabil. Reiknað er með að hann verði klár í slaginn á miðvikudaginn þegar Wetzlar mætir Göppingen í þýsku 1. deildinni.

Klimovets er Hvít-Rússi og lék lengi með landsliðinu áður en hann varð þýskur ríkisborgari fyrir nokkrum árum. Eftir það lék hann um nokkurt skeið með þýska landsliðinu og varð m.a. heimsmeistari fyrir fimm árum. Klimovets lék með Melsungen á síðasta vetri en var einnig um um nokkurra ára skeið leikmaður Rhein-Neckar Löwen og þar áður hjá Flensburg.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is