Langur sjúkralisti hjá Guðmundi
Ljóst er að Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik og þjálfari Rhein-Neckar Löwen, mun ekki geta stillt upp sínu sterkasta liði þegar Löwen mætir Balingen í þýsku 1. deildinni í handknattleik á miðvikudagskvöldið. Að minnsta kosti fjórir leikmenn eru á sjúkralista um þessar mundir.
Norðmaðurinn Börge Lund er frá keppni vegna meiðsla sem hann hlaut í leik með Norðmönnum á EM í Serbíu fyrir skömmu. Sömu sögu er að segja af þýska landsliðsmanninum Patrick Groetzki og Pólverjanum Krzysztof Lijewski. Báðir eru þeir meiddir í hné.
Síðast en ekki síst hefur Serbinn Zarko Sesum ekki jafnað sig eftir að smápeningi var kastað í augað á honum eftir undanúrslitaleik Serba og Króata á Evrópumeistaramótinu. Peningnum kastaði stuðningsmaður serbneska landsliðsins og átti hann að hæfa Króata en ekki tókst betur til en svo að Sesum varð fyrir peningnum.






