Óvíst hvað Ólafur gerir

Ólafur Stefánsson er óviss um hvort hann spili handknattleik eitt ár til viðbótar eða ekki. stækka

Ólafur Stefánsson er óviss um hvort hann spili handknattleik eitt ár til viðbótar eða ekki. mbl.is/Golli

Óvíst er hvort Ólafur Stefánsson framlengir samning sinn við danska meistaraliðið AG frá Kaupmannahöfn en liðið varð um helgina danskur bikarmeistari í handknattleik annað árið í röð.

Haft er eftir Ólafi á vef TV2 í Danmörku að hann ætli að svara forráðamönnum AG innan fárra vikna hvort hann taki boði þeirra um nýjan samning til eins árs. Hermt er í fréttinni að Ólafur hafi rætt við Sören Colding, framkvæmdastjóra AG, og Jesper Nielsen, eiganda AG, um hvað taki við þegar núverandi samningur hans við félagið rennur út um mitt árið.

„Ég skulda liðinu svar innan fárra vikna hvað ég ætla mér að gera á næsta keppnistímabili. Um þessar mundir veit ég ekki hvað ég geri en langi mig til þess að leika handknattleik á næsta keppnistímabili þá leik ég með AG,“ er haft eftir Ólafi á vef TV2.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is