Engin ástæða til að skoða aðra kosti

Þórey Rósa Stefánsdóttir. stækka

Þórey Rósa Stefánsdóttir. mbl.is/Golli

„Ég er mjög ánægð með nýjan samning. Mér líkar afar vel við allt í kringum félagið og sá því ekki ástæðu til þess að skoða aðra kosti í stöðunni,“ sagði Þórey Rósa Stefánsdóttir, landsliðskona í handknattleik. Hún skrifaði undir tveggja ára samning við danska úrvalsdeildarliðið Team Tvis Holstebro (TTH) á Jótlandi undir lok nýliðinnar viku. Þórey Rósa gekk til liðs við TTH í sumar sem leið eftir að hafa spilað í Þýskalandi og í Hollandi um tveggja ára skeið.

„Forráðamenn liðsins vildu gjarnan halda mér og því var þessi kostur bestur. Mér hefur gengið mjög vel með liðinu í vetur og því er allt í lukkunnar velstandi um þessar mundir,“ segir Þórey Rósa sem býr í Holstebro ásamt sambýlismanni sínum, handknattleiksmanninum Einari Inga Hrafnssyni, sem er á mála hjá Mors Thy í úrvalsdeild karla í Danmörku.

„Það er afar vel staðið að öllum málum hjá TTH, umgjörðin er fín, metnaðurinn mikill, keppnishöllin ný og afar glæsileg og liðsfélagarnir fínir og ekki líklegt að miklar breytingar verði á leikmannahópnum, að minnsta kosti mun hann ekki veikjast. Þá er þjálfarinn mjög góður og hann hefur mikla trú á mér. Þar af leiðandi var ekki hægt að afþakka tilboðið frá liðinu þegar ljóst var að það vildi halda í mig.“

TTH deilir efsta sæti úrvalsdeildar kvenna með Viborg.

Þórey Rósa segir árangurinn til þessa á keppnistímabilinu hafa farið fram úr björtustu vonum.

Sjá nánar viðtal við Þóreyju í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is