Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 7.2.2012
| 11:44
| Uppfært
15:15
Gensheimer bestur í Þýskalandi
Þýski landsliðsmaðurinn í handknattleik og hornamaður Rhein-Neckar Löwen Uwe Gensheimer var kjörinn leikmaður ársins í Þýskalandi fyrir árið 2011 í árlegu vali vikuritsins Handballwoche.
Gensheimer lék afar vel á síðasta keppnistímabili jafnt með félagsliðinu, undir stjórn Guðmundar Þórðar Guðmundssonar, sem og með landsliðinu.
Í næstu tveimur sætum voru lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Kiel, Filip Jicha og Christian Zeitz.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






