Með eftir tvær vikur
„Hjá mér er allt á réttri leið. Vonandi get ég farið að æfa með liðinu í næstu viku og hugsanlega spilað með eftir hálfan mánuð ef allt gengur upp. Ég set stefnuna á það,“ sagði handknattleiksmaðurinn Sigurbergur Sveinsson hjá svissneska A-deildarliðinu RTV Basel í gær.
Sigurbergur gekkst undir aðgerð vegna rifins liðþófa í hné í síðari hluta nóvember á síðasta ári. Síðan hefur hann verið í endurhæfingu og var að koma frá sjúkraþjálfara þegar Morgunblaðið náði tali af honum.
„Það má segja að ég sé á áætlun miðað við það plan sem gert var þegar ég fór í aðgerðina. Þá var talað um að ég myndi jafna mig á tíu vikum og það virðist ætla að ganga eftir,“ segir Sigurbergur sem lék stórt hlutverk hjá RTV Basel fram að þeim tíma að hann meiddist og var m.a. næstmarkahæsti leikmaður svissnesku A-deildarinnar.
Sjá nánar viðtal við Sigurberg í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






