Nielsen reiknar með Ólafi
„Við gerum ráð fyrir að Ólafur leiki með okkur áfram á næsta keppnistímabili,“ sagði Jesper Nielsen, eigandi danska meistaraliðsins AG Köbenhavn í samtali við sporten.dk í Danmörku í gær.
Ummælin lét hann falla í framhaldi af ummælum Ólafs Stefánssonar á sama vettvangi þess efnis að óvíst væri að hann léki handknattleik á næstu leiktíð. Svo kynni að fara að hann hætti að leika handknattleik í sumar. Vitað er að Ólafur hefur rætt við forráðamenn AG um framtíðina og hvað taki við þegar núverandi samningur hans við danska meistaraliðið rennur út um mitt árið.
„Ég skulda liðinu svar innan fárra vikna um hvað ég ætla mér að gera á næsta keppnistímabili. Um þessar mundir veit ég ekki hvað ég geri en langi mig til þess að leika handknattleik á næsta keppnistímabili þá leik ég með AG,“ er haft eftir Ólafi á sporten.dk og fleiri dönskum fréttavefjum í gær.
Ólafur verður 39 ára á þessu ári og hefur glímt við þrálát meiðsli í hné allt keppnistímabilið en hann fór í speglun í sumar. Hann náði þó fínum leik á sunnudaginn þegar AG lagði Aalborg DH í úrslitum bikarkeppninnar og skoraði 5 mörk. iben@mbl.is






