Pólverjar og Dani yfirgefa Guðmund

Karol Bielecki og Krzysztof Lijewski leika Kielce í Póllandi á næsta keppnistímabili. stækka

Karol Bielecki og Krzysztof Lijewski leika Kielce í Póllandi á næsta keppnistímabili. Reuters

Pólsku landsliðsmennirnir Karol Bielecki og Krzysztof Lijewski yfirgefa herbúðir þýska handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen, sem Guðmundur Þórður Guðmundsson þjálfar, við lok yfirstandandi leiktíðar. Hins vegar hefur liðið klófest sænska landsliðsmanninn Kim Ekdahl du Rietz frá Nantes í Frakklandi.

Bielecki og Lijewski ganga til liðs við Vive Kielce í sumar og verða þar með samherjar Þóris Ólafssonar. Fyrir eru hjá Kielce fleiri pólskir landsliðsmenn sem áður léku í Þýskalandi, þar á meðal hjá Löwen. Má þar nefna Slavomir Szsmal markvörð og Grzegorz Tkaczyk.

Þá var tilkynnt í dag að Daninn Jesper Nielsen hefði sagt af sér sem stjórnarformaður Rhein-Neckar Löwen og ætlaði sér þar með að slíta öll tengsl við félagið. Nielsen ætlar að einbeita sér að rekstri danska meistaraliðsins AG Köbenhavn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is