Ágúst með tilboð frá Odense

Ágúst Þór Jóhannsson, handknattleiksþjálfari. stækka

Ágúst Þór Jóhannsson, handknattleiksþjálfari. mbl.is/Árni Sæberg

Ágúst Þór Jóhannsson, landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik, er með tilboð frá danska úrvalsdeildarliðinu Odense HC í fórum sínum um þessar mundir. Hann heimsótti félagið nýverið og skoðaði aðstæður og ræddi við forráðamenn liðsins en það rekur nú lestina í dönsku úrvalsdeildinni.

„Ég er enn að skoða tilboðið frá Danmörku og hef ekki gert upp hug minn,“ sagði Ágúst við Morgunblaðið í gær. Hann er þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Levanger en nokkru fyrir áramót ákvað Ágúst að afþakka lengri samning við liðið en hann er að ljúka sínu þriðja keppnistímabili með það.

„Ég hef einnig fengið fyrirspurnir frá félögum á Norðurlöndunum, bæði karla- og kvennaliðum, jafnt úr efstu deild sem næstefstu,“ segir Ágúst sem fékk góða kynningu á HM kvenna í lok síðasta árs þar sem íslenska landsliðið hafnaði í 12. sæti undir stjórn hans.

Nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is