Annað tap AG Köbenhavn

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í AG Köbenhavn töpuðu í kvöld. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson og félagar hans í AG Köbenhavn töpuðu í kvöld. www.agkbh.dk

Íslendingaliðið AG Köbenhavn mátti þola sitt annað tap á leiktíðinni í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar liðið tapaði fyrir Álaborg, 26:24, í kvöld. Þessi sömu lið áttust við í bikarúrslitaleik um síðustu helgi þar sem AG Köbenhavn hafði betur.

Álaborg hefur þar með unnið báðar viðureignir liðanna í deildinni á tímabilinu en liðið hafði undirtökin allan tímann og var fimm mörkum yfir eftir fyrri hálfleikinn, 13:8.

Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 5 mörk fyrir AG Köbenhavn, Arnór Atlason skoraði 3 og þeir Snorri Steinn Guðjónsson og Ólafur Stefánsson skoruðu sitt markið hvor.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is