Engin bjartsýni hjá Hollendingum

Guðmundur Þ. Guðmundsson og hans lærisveinar mæta Hollendingum í umspilinu fyrir HM. stækka

Guðmundur Þ. Guðmundsson og hans lærisveinar mæta Hollendingum í umspilinu fyrir HM. mbl.is/Golli

„Ég met líkurnar 70 á móti 30 Íslandi í vil en við munum gera allt hvað við getum til þess að gera íslenska landsliðinu skráveifu,“ segir Mark Schmetz, aðstoðarlandsliðsþjálfari Hollendinga í handknattleik karla, en Hollendingar drógust gegn Íslendingum í undankeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik karla þegar dregið var í Belgrad fyrir skömmu.

„Það er alveg sama gegn hvaða þjóð við hefðum dregist. Öll liðin úr efri styrkleikaflokknum eru erfið og Ísland er því hvorki betri né verri andstæðingur en hver annar,“ segir Schmetz í samtali við heimasíðu hollenska handknattleikssambandsins.

Schmetz segir flesta leikmenn íslenska landsliðsins leika í Þýskalandi og hann þekki vel til Guðjóns Vals Sigurðssonar en þeir voru samherjar hjá Tusem Essen um nokkurra ára skeið í byrjun aldarinnar.

Schmetz, sem er 34 ára gamall, leikur einnig með hollenska landsliðinu samhliða því að vera aðstoðarlandsliðsþjálfari. Hann er leikreyndasti landsliðsmaður Hollendinga um þessar mundir. Schmetz hefur leikið með þýskum félagsliðum í 13 ár, m.a. Lemgo, Essen og Wallau Massenheim, en hefur síðustu tvö árin verið í herbúðum Hamm.

Schmetz segist reikna með að hollenska landsliðið hefji undirbúning sinn með vikulöngum æfingabúðum í byrjun apríl á sama tíma og íslenska landsliðið tekur þátt í forkeppni Ólympíuleikanna í Króatíu.

Fyrri viðureign Íslendinga og Hollendinga fer fram hér á landi 9. eða 10. júní. Viku síðar mætast þjóðirnar á ný ytra. iben@mbl.is

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is