Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 8.2.2012
| 21:25
| Uppfært
21:42
ÍBV auðveldlega í úrslitaleikinn
ÍBV er komið í úrslitin í bikarkeppni kvenna í handknattleik, Eimskipsbikarsins, eftir auðveldan sigur á FH, 24:13, í undanúrslitum keppninnar í Vestmannaeyjum í kvöld.
Staðan í hálfleik var 12:7, ÍBV í hag, og Eyjakonur gerðu 12 mörk gegn aðeins sex í seinni hálfleiknum. Þær mæta annaðhvort Val eða Stjörnunni í úrslitaleiknum en sá leikur stendur yfir á Hlíðarenda og er fylgst með gangi þar hér á mbl.is.
Grigore Ggorgata skoraði 6 mörk fyrir ÍBV, Ivana Mladenovic 3, Rakel Hlynsdóttir 3 og Ester Óskarsdóttir 3. Florentina Stanciu varði 23 skot.
Ingibjörg Pálmadóttir skoraði 4 mörk fyrir FH og Berglind Ósk Björgvinsdóttir 3.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






