Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 8.2.2012
| 23:16
Jón Gunnlaugur: Erfitt þegar Flora er í þessum ham
Júlíus G. Ingason, sport@mbl.isJón Gunnlaugur Viggósson, þjálfari FH, sagði afar erfitt að eiga við ÍBV þegar Florentina Stanciu væri í ham í markinu eins og í kvöld þegar liðin mættust í undanúrslitum Eimskips-bikarkeppninnar í handknattleik.
ÍBV sigraði 24:13 og mætir Val í bikarúrslitum.
„Við vorum með 35% skotnýtingu í þessum leik sem er engan veginn nógu gott,“ sagði Jón í samtali við mbl.is að leiknum loknum.
Hann hrósaði samt sem áður sínum leikmönnum. „Stelpurnar voru samt duglegar og börðust vel. Ég er mjög ánægður með þær þrátt fyrir stórt tap.“
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






