Kiel staðfestir komu Guðjóns

Guðjón Valur Sigurðsson flytur frá Kaupmannahöfn til Kílar í Þýskalandi í sumar. stækka

Guðjón Valur Sigurðsson flytur frá Kaupmannahöfn til Kílar í Þýskalandi í sumar. Kristinn Ingvarsson

Þýska handknattleiksliðið Kiel hefur staðfest á heimasíðu sinni að Guðjón Valur Sigurðsson, fyrirliði íslenska landsliðsins, gangi til liðs við félagið í sumar. Hann hafi þegar skrifað undir tveggja ára samning sem taki gildi í vor og rennur út um mitt ár 2014.

Kiel verður fjórða félagið í Þýskalandi sem Guðjón Valur leikur með. Hin eru Tusem Essen, Gummersbach og Rhein-Neckar Löwen. Á tíu ára ferli með liðunum þremur hefur hann skorað alls 1.379 mörk.

Guðjón Valur flutti sig á liðnu sumri til danska meistaraliðsins AG Köbenhavn og varð á dögunum bikarmeistari með félaginu.

Orðrómur um félagsskipti Guðjóns Vals til Kiel hefur verið upp síðan fyrir áramót. Hann fékk hinsvegar byr undir báða vængi eftir Evrópumeistaramótið í Serbíu á dögunum en Guðjón hafa fundað með forsvarsmönnum félagsins skömmu eftir að íslenska landsliðið lauk keppni á EM.

Alfreð Gíslason hefur þjálfað Kiel frá sumrinu 2008 en Guðjón Valur lék undir hans stjórn um tveggja ára skeið hjá Gummersbach og einnig í íslenska landsliðinu frá miðju ári 2006 fram til ársbyrjunar 2008.

Fyrir hjá Kiel er íslenski landsliðsmaðurinn Aron Pálmarsson en hann varð fyrsti íslenska handknattleiksmaðurinn til þess að leika með þessu stórliði í þýskum handknattleik.

Kiel hefur sextán sinnum orðið þýskur meistari í handknattleik, sjö sinnum unnið bikarkeppnina, tvisvar Meistaradeild Evrópu, þrisvar sinnum EHF-keppnina auk þess sem liðið varð heimsmeistari félagsliða á síðasta ári.

Guðjóni Val er ætlað að fylla skarð Svíans Henrik Lundströms sem yfirgefur Kiel í sumar. Auk Guðjóns Vals er von á Marko Vujin, Rene Toft Hansen og Patrick Wiencek til Kílarliðsins í sumar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is