Leikið til þrautar í kvöld

Stefán Arnarson, þjálfari Vals, verður í eldlínunni í kvöld þegar Valur fær Stjörnuna í heimsókn ... stækka

Stefán Arnarson, þjálfari Vals, verður í eldlínunni í kvöld þegar Valur fær Stjörnuna í heimsókn í undanúrslitum Eimskipsbikarsins. Eggert Jóhannesson

Leikið verður í undanúrslitum í Eimskipsbikar kvenna í handknattleik í kvöld. Þá sækir Stjarnan Íslandsmeistara Vals heim í Vodafone höllina og FH mætir ÍBV í Vestmannaeyjum. Sú viðureign átti að fara fram í gær en var frestað vegna veðurs.

Útlit er fyrir að hægt verði að fljúga á milli lands og Eyja í dag og samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu HSÍ er ráðgert að FH-liðið fari í loftið frá Reykjavíkurflugvelli klukkan 14.

Flautað verður til leiks í Eyjum klukkan 19.15 en 45 mínútum síðar í Vodafone höllinni. Leikið verður til þrautar í báðum leikjum því ef jafnt verður að loknum venjulegum leiktíma verður gripið til framlengingar.

Valur hefur verið í úrslitum Eimskipsbikars kvenna tvö síðustu árin en tapað fyrir Fram í bæði skiptin. Valskonur náðu fram hefndum í 8-liða úrslitum keppninnar í ár með því að leggja Fram liðið. Valur hefur þrisvar sinnum orðið bikarmeistari, síðast fyrir 12 árum. Stjarnan hefur hinsvegar sex sinnum hampað bikarnum í kvennaflokki, síðast fyrir þremur árum.

ÍBV hefur ekki komist í undanúrslit í Eimskipsbikarnum frá 2006 en liðið lék síðast til úrslita fyrir sex árum og tapaði þá fyrir Haukum. ÍBV varð síðast bikarmeistari í kvennaflokki 2004, þá í þriðja sinn. FH hefur einu sinni hampað bikarnum, fyrir 31 ári.

Úrslitaleikur Eimskipsbikarsins fer fram í Laugardalshöll laugardaginn 25. febrúar.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is