Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 8.2.2012
| 23:05
Þorgerður: Æðislegt að vera komin í Höllina
Þorgerður Anna Atladóttir, skyttan unga í liði Vals, átti góðan leik fyrir Íslandsmeistara Vals þegar þeir lögðu Stjörnuna í undanúrslitum í bikarkeppni kvenna í handknattleik á Hlíðarenda í kvöld.
Þorgerður skoraði 8 mörk í leiknum sem Valur hafði betur í, 35:28, og mætir liðið ÍBV í úrslitaleik.
,,Það er æðislegt að vera komin í úrslit í Höllina. Við fórum ekki auðveldustu leiðina í úrslitaleikinn en það er bara sætara,“ sagði Þorgerður við mbl.is eftir leikinn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






