Valur í bikarúrslit þriðja árið í röð
Hrafhildur Ósk Skúladóttir reynir markskot að marki Stjörnunnar í kvöld en til varnar er Rut Steinsen. mbl.is/Kristinn Ingvarsson
Valur leikur til úrslita í bikarkeppni kvenna í handknattleik þriðja árið í röð eftir öruggan sigur á Stjörnunni í Vodafone-höllinni í kvöld. Valur mætir ÍBV í úrslitum í Laugardalshöllinni laugardaginn 25. febrúar.
Valur hafði undirtökin allan tímann og það var snemma ljóst í hvað stefndi. Valur hafði sex marka forystu eftir fyrri hálfleikinn, 16:10, og í síðari hálfleik jókst munurinn jafnt og þétt. Þorgerður Anna Atladóttir og Hrafnhildur Skúladóttir voru markahæstar í liði Vals með 8 mörk en hjá Stjörnunni skoraði Rut Steinsen 7 mörk.
60. leiknum er lokið með sigri Vals, 35:28.
53. Valur hefur raðað hverju markinu á fætur öðru úr hraðaupphlaupum og munurinn er orðin tíu mörk, 33:23. Þorgerður Anna var að skora sitt áttunda mark. Það er komin uppgjöf í Stjörnuliðið.
47. Mörkunum rignir niður í Vodafone-höllinni. Staðan er, 28:22, Val í vil.
42. Valur er með gott forskot en staðan er, 24:16. Valskonur eru á leið í bikarúrslitin en um leið og Stjarnan gerir sig líklega til að minnka muninn gefur Valur í.
35. Sjarnan hefur aðeins náð að laga stöðuna en Valur er 18:14 yfir. Það er þó ekkert annað í spilunum en að Valur fari með sigur af hólmi.
31. Ekki byrjaði seinni hálfleikurinn vel fyrir Stjörnuna. Sólveig Lára Kjærnested varð fyrir meiðslum og þarf að fara af leikvelli.
30. Það er kominn hálfleikur að Hlíðarenda þar sem Valur hefur örugga forystu, 16:10. Eftir að Stjarnan skoraði fyrsta markið hefur Valur haft undirtökin og náði mest sjö marka forskoti. Hrafnhildur Skúladóttir er markahæst í liði Vals með 4 mörk en hjá Stjörnunni er Jóna Margrét Ragnarsdóttir atkvæðamest með 3 mörk.
25. Valur er að herða tökin en staðan er nú orðin, 14:7. Valskonur refsa grimmt með hraðaupphlaupum og staðan er orðin vænleg fyrir heimaliðið. Jóna Margrét Ragnarsdóttir er farin af velli í liði Stjörnunnar vegna meiðsla og það er óvíst hvort hún taki frekar þátt í leiknum.
20. Íslandsmeistararnir eru með góð tök á leiknum en staðan er, 10:6. Sóknarleikur Stjörnunnar hefur ekki gengið sem skildi og Valskonur hafa einnig gert sig seka um mistök í sókninni. Dagný er komin inná aftur í lið Vals. Meiðslin hafa reynst minnháttar.
16. Brotið var illa á Dagnýju Skúladóttir í hraðaupphlaupi. Hún meiddist á hendi og þarf af fara af leikvelli. Ekki er vitað hvort um alvarleg meiðsli eru að ræða.
15. Valur er skrefinu á undan en staðan er, 7:4. Það hefur verið töluvert um mistök á báða bóga í sóknarleiknum en varnarinnar eru ágætar hjá báðum liðum. Valur hefur refsað Stjörnukonum með nokkrum mörkum úr hraðaupphlaupum.
10. Valur er yfir, 4:2. Jenný Ásmundsdóttir markvörður Vals og landsliðsins hefur reynst Garðabæingum erfið en hún er búinn að verja 5 skot.
5. Staðan er 2:1 Val í hag eftir að Jóna Margrét Ragnarsdótir hafði skorað fyrsta mark leiksins fyrir Stjörnuna.
1. Leikurinn er hafinn. Hann hófst 15 mínútum á eftir áætlun.
0. Það verður einhver smá seinkun á leiknum þar sem leikur Vals og Njarðvíkur í Iceland Express-deild kvenna í körfuknattleik drógst á langinn. Leikmenn Vals og Stjörnunnar gátu ekki byrjað að hita upp fyrr en um kl. 19.45.
0. Þetta er þriðja viðureign liðanna í vetur en Valur vann báða deildarleiki liðanna með miklum mun. Það fyrri í Mýrinni, 28:20, og það síðari í Vodafone-höllinni í lok janúar, 24:15.
Lið Vals: Guðný Jenný Ásmundsdóttir, Sunneva Einarsdóttir, Ágústa Edda Björnsdóttir, Hildur Marin Andrésdóttir, Karólína Lárudóttir, Aðalheiður Hreinsdóttir, Dagný Skúladóttir, Kristín Guðmundsdóttir, Nataly Sæunn Valencia, Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, Þórunn Friðriksdóttir, Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, Þorgerður Anna Atladóttir, Arndís María Erlingsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir.
Lið Stjörnunnar: Helga Dóra Magnúsdóttir, Kristín Ósk Sævarsdóttir, Rut Steinsen, Hildur Harðardóttir, Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Esther Ragnarsdóttir, Sólva Lára Kjærnested, Guðrún H. Guðjónsdóttir, Hanna G. Stefánsdóttir, Berglind Halldórsdóttir, Helena Örvarsdóttir, Arna Dýrfjörð, Sandra Sigurjónsdóttir, Þórhildur Gunnarsdóttir.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson.






