Wilbek reiknar með sterkum Spánverjum

Ulrik Wilbek og leikmenn danska landsliðsins fagna sigri á EM í Serbíu á dögunum. Nú ... stækka

Ulrik Wilbek og leikmenn danska landsliðsins fagna sigri á EM í Serbíu á dögunum. Nú stefna þeir á verðlaunasæti á Ólympíuleikunum í sumar. Reuters

Ulrik Wilbek, þjálfari Evrópumeistara Dana í handknattleik karla, segist telja að Spánverjar verði helsti keppinautur Dana í handknattleikskeppni Ólympíuleikanna í sumar. Eftir sigurinn á EM þá hefur Wilbek sett stefnuna á gullverðlaun á leikunum sem fram fara í London í lok júlí og í byrjun ágúst á þessu ári.

„Spánverjar munu mæta enn sterkari til leiks en á EM þar sem þeir hafa þá endurheimt Sterpik markvörð úr meiðslum auk þess sem Laslo Nágy mun spila með þeim í fyrsta sinn. Leikmannahópur Spánverja verður ennþá sterkari en áður,“ segir Wilbek sem einnig fór með lið sitt sem ríkjandi Evrópumeistari á Ólympíuleikana fyrir fjórum árum en tókst ekki að vinna til verðlaun.

Eins telur Wilbek fullvíst að Frakkar muni mæta sterkir til leiks á Ólympíuleikunum eftir vonbrigðin á EM. Þá verði Króatar einnig til alls vísir á Ólympíuleikunum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is