Ævintýri að dæma í Jeddah
„Það var mikið ævintýri að taka þátt í þessu en okkur gekk vonum framar í okkar störfum og það er fyrir mestu,“ segir handknattleiksdómarinn Jónas Elíasson sem ásamt félaga sínum, Ingvari Guðjónssyni, kom heim til landsins seint á þriðjudagskvöldið eftir að hafa dvalið í Jeddah við Rauðahafsströnd Sádi-Arabíu í hálfan mánuð. Þar dæmdu þeir fimm leiki á Asíumeistaramótinu í handknattleik karla, m.a. annan undanúrslitaleikinn og úrslitaleikinn sjálfan milli Suður-Kóreu og Katar.
„Við dæmdum í úrslitakeppninni á meistaramóti Katar í fyrra þannig að við vissum vel út í hvað við vorum að fara þegar komið var til Jeddah,“ segir Jónas. „Handknattleikurinn hjá Aröbum er svolítið öðruvísi en við þekkjum í Evrópu. Það er svolítið meiri leikaraskapur og þeir eiga það til að leggjast í gólfið og bera sig aumlega í tíma og ótíma. Menn standa ekki af sér minnstu pústra.
Fyrir keppnina í Jeddah var farið rækilega yfir málin með okkur dómurunum og þess m.a. getið að þetta væri svolítið stíllinn hjá Aröbunum, það er að standa ekki af sér minnstu pústra. Við fengum því skýra línu um það frá okkar yfirmönnum að stöðva ekki leikina þótt menn legðust í gólfið og bæru sig aumlega, heldur að taka fast á öllum leikaraskap og beita stighækkandi refsingu gagnvart honum," segir Jónas en hann og Ingvar fengu fína dóma fyrir frammistöðu sína í mótinu.
Sjá nánar viðtal við Jónas í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.






