Afturelding knúði fram jafntefli

Þrándur Gíslason, leikmaður Aftureldingar. stækka

Þrándur Gíslason, leikmaður Aftureldingar. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Afturelding og Fram skildu jöfn 23:23 þegar þau áttust við í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Síðustu mínúturnar voru æsispennandi en þeim er líst nánar hér neðar á síðunni.

Markahæstir hjá heimamönnum voru þeir Sverrir Hermannsson með 6 mörk og Jóhann Jóhannsson og Jón Andri Helgason báðir með 4 mörk. Hjá Fram var það Stefán Baldvin Stefánsson sem skoraði mest eða 6 mörk og Sigurður Eggertsson gerði 4. Markverðir liðanna Davíð Svansson og Magnús Erlendsson vörðu báðir um 18 skot.

Fylgst var með gangi mála í beinni textalýsingu hér að neðan.

Lið Aftureldingar: Davíð Hlíðdal Svansson (m), Hafþór Einarsson (m), Hilmar Stefánsson, Helgi Héðinsson, Hrafn Ingvarsson, Böðvar Páll Ásgeirsson, Aron Eyrbekk Gylfason, Einar Héðinsson, Sverrir Hermannsson, Pétur Júníusson, Jóhann Jóhannsson, Jón Andri Helgason Þorlákur S. Sigurjónsson, Daníel Jónsson. Þjálfari Aftureldingar er Reynir Þór Reynisson.

Lið Fram: Magnús Gunnar Erlendsson (m), Sebastian Alexandersson (m), Sigfús Páll Sigfússon, Matthías Daðason, Halldór Jóhann Sigfússon, Jóhann Gunnar Einarsson,  Stefán Balvin Stefánsson, Jóhann Karl Reynisson, Einar Rafn Eiðsson, Sigurður Eggertsson, Ægir Hrafn Jónsson, Jón Arnar Jónsson, Róbert Aron Hostert, Arnar Birkir Háldánsson. Þjálfari Fram er Einar Jónsson.

60. Fram náði ekki að nýta sér þessar 9 sekúndur og Afturelding knúði því fram jafntefli 23:23.

59. Það mátti heyra saumnál detta þegar Hilmar Stefánsson fór á vítapunktinn. Hann skoraði og þá varð allt vitlaust að Varmá. Fram tók leikhlé þegar 9 sekúndur eru eftir og staðan er jöfn 23:23.

59. Spennan verður ekki öllu meiri. Vítakast sem Afturelding á þegar 13 sekúndur eru eftir og staðan er 22:23, Fram í vil.

58. 22:22 og Afturelding með boltann, tvær mínútur eftir.

55. Staðan er 21:22 og 4 og hálf mínúta eftir, Fram er með boltann.

48. Leikhléið virkaði vel hjá Aftureldingu en þeir eru búnir að jafna metin 17:17.

45. Eru leikmenn Aftureldingar að gefa eftir eins og gegn FH í síðustu umferð? Í það minnsta er staðan 15:17 Fram í vil og Reynir Þór tekur leikhlé. Ekki skrýtið þar sem allir þættir handboltans nema ef vera kynni markvarslan, eru ekki góðir.

40. Eitt mark hefur verið skorað á síðustu 5 mínútum og það var Stefán Baldvin sem gerði það fyrir Fram og jafnaði metin í 14:14.

35. Staðan er 14:13 en bæði lið koma af krafti til síðari hálfleiks. Leikmenn Aftureldingar þurfa þó að vera manni færri næstu 2 mínúturnar eftir að Einari Héðinssyni var vikið af velli fyrir brot á Sigurði Eggertssyni.

31. Leikurinn er hafinn að nýju og geta leikmenn Aftureldingar náð þriggja marka forskoti en þeir byrja með boltann í síðari hálfleik.

30. Akureyri vann Gróttu 29:18 og þar með má Fram ekki tapa í kvöld ætlli þeir sér að halda 4. sætinu. Nánar um þann leik hér.

30. Hálfleikur - Það eru heimamenn sem fara ánægðari til búningsklefa í hálfleik en staðan er 12:10. Afturelding skoraði tvö síðustu mörk hálfleiksins það síðasta úr víti en Jóhann Jóhannsson skoraði af öryggi sitt þriðja mark og það fyrsta úr víti. Hann er markahæstur heimamanna. Næstur Jóhanni eru þeir Jón Andri og Sverrir báðir með tvö mörk. Davíð Svansson hefur varið 7 skot þar af tvö víti. Hjá Fram er Jón Arnar með 3 mörk rétt eins og Sigurður Eggertsson. Jóhann Karl er með tvö en Magnús Erlendsson er maður fyrri hálfleiksins að mati undirritaðs. Hann er búinn að verja 9 skot og það oft á mikilvægum augnablikum.
Varnarleikur liðanna er ágætur en sóknarleikurinn er að sama skapi alveg skelfilegur og þá sérstaklega hjá gestunu. Þeir eru ráðvilltir og þess vegna að gera mörg klaufaleg mistök eins og að missa boltann í hendur heimamanna.

27. Staðan er 10:10 þegar þrjár mínútur eru eftir af fyrri hálfleik. Sókn beggja liða farin að ganga betur.

22. Þetta fer að verða vandræðalegt en hvorugt liðið hefur skorað í um það bil 5 mínútur og í raun enn lengra síðan Fram skoraði. Halldór Jóhann fékk gott tækifæri af vítalínunni en Davíð varði sitt annað víti. Sóknarleikur beggja liða er lélegur, það verður bara að segjast alveg eins og er.

15. Staðan er 5:7 gestunum í vil þegar fyrri hálfleikur er hálfnaður. Magnús ERlendsson hefur farið á kostum í marki Fram með 6 skot farin. Þá hefur Jón Arnar skorað þrjú mörk. Hjá Aftureldingu er Jóhann Jóhannsson með tvö mörk en aðrir minna. Davíð hefur ekki varið skot síðan á 8. mínútu.

8. Staðan er 3:3 þegar átta mínútur eru liðnar en bæði lið spila fast en dómararnir virðast leyfa töluverða hörku. Davíð Svansson sem fékk skotið í andlitið áðan hélt að sjálfsögðu áfram og er búinn að verja fjögur skot í marki heimamanna.

4. Fyrsta markið er komið en það skoraði Hrafn Ingvarsson fyrir Aftureldingu úr hraðaupphlaupi. Það gengur ekkert í sóknarleik Fram þessar fyrstu mínútur.

2. Hvorugu liðinu hefur tekist að skora en Einar Rafn Eiðsson var að fá rautt spjald fyrir að henda boltanum beint í andlitið á Davíð markverði Aftureldingar úr vítakasti. Mikið áfall fyrir Framara en ekkert hægt að segja við dómnum. 1 mínúta og 24 sekúndur liðnar þegar þetta gerist.

1. Leikurinn er hafinn og það eru Framarar sem byrja í sókn.

0. Dómarar eru þeir Gísli Jóhannsson og Hafsteinn Ingibergsson. Þeir dæmdu síðast leik Akureyrar og HK í N1-deild karla þar sem eitt rautt spjald fór á loft.

0. Fram hefur skorað 335 mörk í deildinni í vetur. Þrjú lið hafa skorað færri mörk en það er Grótta sem er með eitt stig í neðsta sæti, mótherji þeirra í kvöld Afturelding sem hefur skorað 300 og svo líklega sem kemur flestum á óvart, Haukar efsta lið deildarinnar. Þrátt fyrir að vera með þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar hafa leikmenn Hauka aðeins skorað 324 mörk. Þeir hafa að sama skapi aðeins fengið á sig 284 eða langfæst mörkin í deildinni. Markatala þeirra er auk þess 11 mörkum betri en HK og Akureyrar sem koma þar á eftir þegar litið er til markatölu.
Það má því ef til vill ekki búast við miklum markaleik í kvöld miðað við þessa tölfræði.

0. Ingimundur Ingimundarson var ekki með Fram þegar liðið vann Gróttu fyrir viku síðan. Hann á við meiðsl að stríða og er ekki á skýrslu í kvöld. Ánægjulegri tíðindi fyrir gestina eru hinsvegar þau að Róbert Aron Hostert er aftur í leikmannahópnum og þá er Jóhann Gunnar Einarsson einnig með liðinu eftir nokkuð langa fjarveru vegna meiðsla.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is