Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 9.2.2012
| 19:48
Aron ekki með í öruggum sigri Kiel
Kiel vann öruggan sigur á Pick Szeged frá Ungverjalandi, 34:24, í meistaradeild Evrópu í handknattleik í kvöld. Staðan var 18:12 í hálfleik.
Kiel, undir stjórn Alfreðs Gíslasonar, er með 13 stig og á tvo leiki eftir en AG er með 10 stig í öðru sætinu og á þrjá leiki eftir. Íslendingaliðin eigast við í lokaumferðinni í Kaupmannahöfn og það gæti orðið úrslitaleikur um sigur í riðlinum.
Aron Pálmarsson lék ekki með Kiel í kvöld. Hann hefur verið veikur að undanförnu og sagði á Twitter að læknir liðsins hefði bannað sér að taka þátt í þessum leik. Hann kvaðst hinsvegar tilbúinn í slaginn í næsta leik, sem er deildaleikur gegn Hüttenberg á sunnudaginn.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






