Aron: Ráðaleysi í sókninni

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka. stækka

Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Fyrri hálfleikurinn var ágætur af okkar hálfu en við vorum bölvaðir klaufar að fara ekki inn í klefa með þriggja til fjögurra marka forskot. Seinni hálfleikurinn var hins vegar mjög slakur af okkar hálfu,“ Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, við mbl.is eftir ósigurinn gegn FH-ingum í N1-deildinni á Ásvöllum í kvöld.

„Fyrst gerðum við okkur seka um einstaklingsmistök í vörninni og síðan varð algjört
ráðaleysi í sókninni þegar menn hættu að horfa á markið. Skotin mörg hver hjá okkur voru hrikalega döpur og við vorum að fá okkur nokkur vond mörk eins og þegar Andri var að skora af 10-11 metra færi en sjálfir vorum við að fara illa með dauðafærin,“ sagði Aron.

Þið fáið kjörið tækifæri til að koma fram hefndum á sunnudaginn?

,,Nú tekur við annað spennandi einvígi á sunnudaginn í annarri keppni. Við verðum auðvitað að selja okkur dýrt í þeim leik. Við munum safna okkar vopnum og nú er mikilvægt að menn haldi hjartanu í brjóstkassanum og verði áræðnir,“ sagði Aron.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is