Bara níu útispilarar á skýrslu

Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen. stækka

Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari Rhein-Neckar Löwen. www.rhein-neckar-loewen.de

„Þetta var afar góður sigur hjá okkur, ekki síst þar sem við vorum aðeins með níu útispilara á skýrslu og einn þeirra var ekki nema hálfur maður, Krzysztof Lijewski, þar sem hann er meiddur á hné en reynir eins og hann getur að hjálpa til,“ sagði Guðmundur Þórður Guðmundsson, þjálfari þýska handknattleiksliðsins Rhein-Neckar Löwen, í samtali við mbl.is í morgun.

Löwen vann í gærkvöldi Balingen á útivelli, 30:24, í þýsku 1. deildinni í handknattleik en þetta var fyrsti leikur liðsins síðan í lok desember vegna hlés sem gert var vegna Evrópumótsins í handknattleik í Serbíu.

„Evrópukeppnin fór ekki vel með okkur hjá Löwen,“ sagði Guðmundur. „Lijewski meiddist í hné í byrjun keppninnar í leik með pólska liðinu, Börge Lund tognaði illa á nára með norska landsliðinu í keppninni. Hornamaðurinn Patrick Groetzki meiddist með þýska liðinu og Zarko Seseum slasaðist á auga þegar kastað var einhverjum hlut í augað á honum.  Ég reikna ekki með Sesum fyrr en eftir sex vikur og óvíst er hvenær Lund kemur til baka þar sem nárameiðsli reynast alltaf erfið,“ segir Guðmundur og bætir við að hann geti aðeins vonast til að fleiri leikmenn heltist ekki úr lestinni á næstunni meðan sjúkralisti liðsins er jafnlangur og raun ber vitni. Einnig var varnarmaðurinn sterki Oliver Roggisch fjarri góðu gamni í gær.

Framundan er þétt dagskrá í þýsku 1. deildinni auk þess sem fyrir dyrum standa tveir leikir við sænska liðið Guif í EHF-keppninni. „Við erum bara með einn leikstjórnanda og eina vinstri skyttu. Eins og staðan er núna má ekkert út af bera. Nú kemur til greina að æfa Uwe Gensheimer hornamann upp í stöðu miðjumanns og láta Róbert Gunnarsson spila í vinstra horninu,“ segir Guðmundur sem sjaldan hefur lent í öðru eins ástandi á sínum langa ferli sem handknattleiksþjálfari.

Fyrri hálfleikur í leiknum við Balingen í gær var jafn. Löwen var marki yfir í hálfleik en með góðri vörn og markvörslu í síðari hálfleik var lagður grunnur að sex marka sigri sem var svo sannarlega meira en þjálfarinn átti von á. „Það er erfitt að sækja leikmenn Balingen heim. Í fyrra áttum við í mestu erfiðleikum með þá á útivelli og vorum þá með okkar öflugasta lið,“ sagði Guðmundur.

Löwen situr í fimmta sæti þýsku 1. deildarinnar með 27 stig að loknum 19 leikjum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is