Dinart til Toulouse?

Didier Dinart stöðvar Arnór Atlason í landsleik Íslendinga og Frakka í Laugardalshöll vorið 2010. stækka

Didier Dinart stöðvar Arnór Atlason í landsleik Íslendinga og Frakka í Laugardalshöll vorið 2010. hag / Haraldur Guðjónsson

Franska varnartröllið Didier Dinart kann að snúa heim til Frakklands fyrr en síðar eftir meira en áratug í spænska handknattleiknum. Forseti franska handknattleiksliðsins Toulouse, Patrick Salles, staðfestir í samtali við franska íþróttablaðið L’Equipe að hann sé að leita leiða til þess að fá Dinart til félagsins.

Salles segir að hann hafi rætt við Dinart, sem er orðin 35 ára gamall, um að koma til liðs við félagið, annaðhvort í sumar eða þegar samningur hans við Atlético Madrid rennur út um mitt næsta ár. Enn sé þó eftir að hnýta marga lausa enda áður en af vistaskiptunum geti orðið.

Dinart hefur lengi verið einn fremsti, ef ekki fremsti varnarmaður heims, í handknattleik. Hann hefur verið lykilmaður í varnarleik franska landsliðsins sem er bæði ríkjandi heims- og ólympíumeistari í handknattleik. Þá er hann leikjahæsti landsliðsmaður Frakka með 355  landsleiki að baki.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is