FH-ingar fögnuðu sigri á Ásvöllum

Ólafur Gústafsson FH-ingur reynir skot að marki Hauka í leiknum í kvöld. stækka

Ólafur Gústafsson FH-ingur reynir skot að marki Hauka í leiknum í kvöld. mbl.is/Ómar

Íslandsmeistarar FH-inga fögnuðu sætum sigri, 26:20, gegn erkifjendum sínum í Haukum þegar liðin áttust við á Ásvöllum í N1-deild karla í handknattleik. Staðan var jöfn í hálfleik, 10:10, en þeir undirtökunum fljótlega í seinni hálfleik og innbyrtu öruggan sigur. Liðin mætast aftur á sama stað í undanúrslitum bikarkeppninnar á sunnudaginn og þar fá Haukar tækifæri til að hefna ófaranna.

Baldvin Þorsteinssson og Hjalti Pálmason voru markahæstir í liði FH með 5 mörk hvor en Tjörvi Þorgeirsson var markahæstur Haukanna með 7 mörk.

60. Leiknum er lokið með sigri FH, 26:20.

55. FH-ingar eru að landa sigri. Þeir eru fimm mörkum yfir, 23:19, og fátt sem bendir til þess að Haukar nái stigi eða stigum úr þessu. Þeir reyna og taka tvo leikmenn úr umferð.

50. Haukar eru í miklum vandræðum í sóknarleik sínum og sum skotin sem þeir hafa tekið í seinni hálfleik hafa verið hrein hörmung. FH-ingar hafa nú góð tök á leiknum og eru fjórum mörkum yfir, 20:16.

44. Hjalti Pálmason var að koma FH í 18:15 með marki úr vítakasti og í kjölfarið tók Aron Kristjánsson þjálfari Hauka leikhlé. Sóknarleikur Hauka hefur verið dapur í seinni hálfleik en á móti hefur vörn FH-inganna verið mjög sterk.

43. Haukarnir jöfnuðu metin í 15:15 en FH-ingar svöruðu með tveimur mörkum og eru yfir, 17:15. Aron Rafn Eðvarðsson er kominn í markið hjá Haukum.

39. Nú eru það FH-ingarnir sem eru skrefinu á undan eftir að Haukarnir höfðu verið í forystuhlutverkinu í fyrri hálfleik. Staðan er 15:14, en Haukarnir eru nú tveimur mönnum færri. Birkir Ívar var að verja víti frá Baldvini. Það er farið að hitna í kolunum bæði innan sem utan vallar.

34. FH-ingar eru komnir yfir í fyrsta sinn. Baldvin Þorsteinsson skoraði gott mark og FH er yfir, 12:11.

31. Seinni hálfleikur er hafinn í þessum hörkuleik. Haukarnir byrja með boltann.

30. Hálfleikur á Ásvöllum. Staðan í gríðarlegum baráttuleik er, 10:10, þar sem Haukar hafa verið skrefinu á undan en þeir náðu mest þriggja marka forskoti. Tjörvi Þorgeirsson er markahæstur í liði Hauka með 5 mörk en hjá FH hefur hornamaðurinn Ari Magnús Þorgeirsson skorað mest eða 4 mörk.

23. Það er mikil reikistefna við ritaraborðið. Örn Ingi skoraði en á sama sekúndubroti tóku FH-ingar leikhlé. Markið stendur ekki en FH-ingar halda boltanum. Kristján Arnason þjálfari FH-inga lét Kjartan Steinbach eftirlitsdómara heyra það. Haukar eru yfir, 8:6.

22. Það er allt í járnum hér á Ásvöllum. Hauka leiða, 7:6, í leik töluverðra mistaka en varnir beggja liða hafa verið góðir sem og markvarslan.

17. FH-ingar eru búnir að skora tvö mörk í röð og minnka muninn í eitt mark, 6:5.

13. Haukar eru komnir í 5:3. FH-ingarnir hafa gert sig seka um mörg mistök í sóknarleiknum og hefur verið refsað fyrir það.

10. Haukar hafa verið skrefinu á undan en baráttan er allsráðandi en staðan er 3:3 og það stefnir í hörkuleik. Birkir Ívar hefur farið á kostum í marki Hauka en hann er búinn að verja sex skot, þar af eitt víti.

5. Haukar eru 2:1 yfir með mörkum Tjörva Þorgeirssonar en Örn Ingi svaraðu fyrir Hauka. Birkir Ívar Guðmundsson er búinn að verja þrjú skot í marki Hauka og byrjar vel.

0. Sigurður Ágústsson línumaðurinn sterki og varnartröll leikur ekki með Íslandsmeisturunum í kvöld vegna veikinda. Þá er Selfyssingurinn Ragnar Jóhannsson enn á sjúkralistanum.

0. Besta dómarapar landsins, Anton Pálsson og Hlynur Leifsson, munu sjá til þess að allt fari vel fram í kvöld.

0. Áhorfendur eru byrjaðir að streyma inn í húsið og það má reikna með fjölmenni á Ásvöllum í kvöld.

0. Haukar og FH mætast aftur á Ásvöllum á sunnudaginn en þá eigast þau við í undanúrslitum Eimskipsbikarsins. Sigurliðin úr þeim leik spilar til úrslita í Laugardalshöllinni þann 25. febrúar gegn HK eða Fram.

Lið Hauka: Aron Rafn Eðvarðsson (m), Birkir Ívar Guðmundsson (m), Einar Pétur Pétursson, Freyr Brynjarsson, Gylfi Gylfason, Heimir Óli Heimisson, Jónatan Ingi Jónsson, Brynjólfur Snær Brynjólfsson, Matthías Árni Ingimarsson, Nemanja Malovic, Stefán Rafn Sigurmannsson, Sveinn Þorgeirsson, Tjörvi Þorgeirsson, Þórður Rafn Guðmundsson.

Lið FH: Daníel Freyr Andrésson (m), Pálmar Pétursson (m), Andri Berg Haraldsson, Arni Magnús Þorgeirsson, Atli Rúnar Steinþórsson, Baldvin Þorsteinsson, Halldór Guðjónsson, Hjalti Þór Pálmason, Ísak Rafnsson, Magnús Óli Magnússon, Ólafur Gústafsson, Þorkell Magnússon, Örn Ingi Bjarkason, Atli Hjörvar Enarsson.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is