Hilmar: Vanur að taka víti gegn Sebastian

mbl.is Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.is

Hilmar Stefánsson vildi ekki meina að Afturelding hefði krækt í eitt stig þegar liðið gerði jafntefli við Fram 23:23 í N1-deild karla í handknattleik. Hann sagði að miðað við stöðuna og að þeir hefðu verið tveimur mörkum yfir í hálfleik, þá hafi það verið klaufaskapur að missa forskotið niður. Hann sagði jafnframt að það væri stígandi í leik liðsins.

Hilmar sagði að dómgæslan hefði ekki haft úrslitaáhrif í kvöld og sagði jafnframt að það hefði frekar hallað á heimamenn í fyrri hálfleik. Einar Jónsson, þjálfari Fram, tjáði sig um störf þeirra og var ekki sammála Hilmari. Viðbrögð Einars má lesa í íþróttablaði Morgunblaðsins sem kemur út á morgun.

Spurður hvað hefði farið í gegnum huga hans þegar hann stóð á punktinum tilbúinn að taka vítakast þegar rétt um 10 sekúndur voru eftir af leiknum sagði Hilmar: „Gamli! - ég er búinn að taka mörg vítaköst á Basta [Sebastian Alexandersson], það þýðir ekkert annað en að vera kaldur.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is