Hjalti: Búið að vera hundleiðinlegt
„Við vorum þolinmóðir. Við vissum eftir fyrri hálfleikinn að við ættum nóg inni en við þyrftum að fækka mistökunum í sókninni og slípa leik okkar hægt og rólega. Þetta gekk vel í seinni hálfleik. Danni var frábær í markinu og vörnin hélt vel allan tímann,“ sagði reynsluboltinn Hjalti Pálmason, leikmaður FH, við mbl.is eftir sigur FH-inga gegn Haukum í N1-deildinni í kvöld.
„Við vorum búnir að tapa fyrir Haukunum tvívegis í vetur og við vildum snúa dæminu við,“ sagði Hjalti.
Oft þegar lið mætast í tveimur leikjum í röð þá skiptast þau á að vinna. Hvað segir þú um það?
„Ég hef einhvern tímann haldið þessari kenningu á lofti en hún hefur verið afsönnuð. Ég hef engar áhyggjur af þessu. Við vitum að það er mikið í húfi á sunnudaginn. Það er orðið langt síðan FH hefur leikið til úrslita og ég veit að það er mikill vilji til þess í liðinu. Við höfum unnið vel í okkar hlutum í janúar. Þetta er búið að vera hundleiðinlegt, útihlaup og spinning en þetta er greinilega farið að skila árangri,“ sagði Hjalti.
Haukar og FH mætast aftur á Ásvöllum á sunnudaginn en þá mætast þau í undanúrslitum Eimskipsbikarsins. Sigurliðið úr þeirri rimmu leikur til úrslita í Laugardalshöllinni laugardaginn 25. febrúar gegn sigurliðinu úr leik Fram og HK.






