Loks sigur hjá Levanger
Levanger, undir stjórn Ágústs Jóhannssonar, fagnaði sigri í gærkvöldi í norsku úrvalsdeildinni í handknattleik þegar liðið lagði Flint Tönsberg á heimavelli, 23:17. Með sigrinum færðist Levanger upp í 7. sæti deildarinnar úr því tíunda en illa hefur gengið hjá liðinu eftir áramótin þar sem fjórir sterkir leikmenn eru fjarri góðu gamni vegna meiðsla eða af öðum ástæðum.
Sigurinn í gærkvöldi var þó ekki eins auðveldur og úrslitin gefa til kynna þar sem leikmenn Flint Tönsberg voru sterkari í fyrri hálfleik og voru m.a. þremur mörkum yfir í hálfleik, 10:7. Leikmenn Levanger náðu hinsvegar að snúa blaðinu við í síðari hálfleik.
Nína Björk Arnfinnsdóttir lék með Levanger í leiknum en Rakel Dögg Bragadóttir og Ramune Pekarskyte eru meðal þeirra sem leika ekki með liðinu um þessar mundir vegna meiðsla.
Elías Már Halldórsson skoraði þrjú af mörkum OIF Arnedal þegar liðið lagði Viking frá Stavangri, 29:28, á heimavelli í úrvalsdeild karla í gærkvöldi. Ingvar Árnason hafði óvenjuhægt um sig að þessu sinni og skoraði aðeins einu sinni fyrir Víkingsliðið.
Arnedal er í 5. sæti með 17 stig að loknum 15 leikjum. Viking er í næsta sæti fyrir neðan með sama stigafjölda.
Hreiðar Levy Guðmundsson, landsliðsmarkvörður, og félagar hans í Nötteröy léku ekki í gærkvöldi. Þeir sitja í 9. sæti með 14 stig eftir 15 leiki.






