Sigfús fékk rautt þegar HK sigraði Val
HK og Valur áttust við í Digranesi klukkan 19:30 í N1-deild karla í handknattleik. HK sigraði 28:26 en Valur var yfir að loknum fyrri hálfleik 14:12. Fylgst var með gangi mála hér á mbl.is.
Markahæstir:
HK: Ólafur Bjarki Ragnarsson 10, Atli Ævar Ingólfsson 6.
Valur: Anton Rúnarsson 9/1, Finnur Ingi Stefánsson 4, Sturla Ásgeirsson 4/1.
60. mín: Leik lokið. HK sigraði 28:26 og er nú sex stigum fyrir ofan Val í deildinni. Gamla kempan Sigfús Sigurðsson fékk beint rautt spjald hjá Val undir lok leiksins og gæti því fengið leikbann. Leó Snær Pétursson lá á gólfinu með boltann. Sigfús var yfir honum og reyndi að ná af honum boltanum en virðist hafa slegið Léo í andlitið í atganginum. Úr blaðamannastúkunni var vonlaust að sjá hvort um viljaverk væri að ræða eða ekki þar sem þeir snéru að áhorfendastúkunni. Þar varð hins vegar allt vitlaust HK-megin og áhorfendur spörkuðu í auglýsingaskilti til að leggja aukinn þunga í málflutning sinn.
55. mín: Staðan er 26:23 fyrir HK. Sturla Ásgeirsson var að henda boltanum út fyrir hliðarlínu þegar hann reyndi sendingu fyrir aftan bak. Valsmenn virðast vera að missa einbeitinguna og HK fær boltann þegar sléttar fimm mínútur eru eftir.
52. mín: Staðan er 24:22 fyrir HK. Valsmenn eru með boltann og taka leikhlé.
48. mín: Staðan er 23:21 fyrir HK. Heimamenn eru með tveggja marka forskot. Ólafur Bjarki hefur farið hamförum í leiknum og mörkin eru orðin 9 talsins. Ekkert þeirra af vítapunktinum.
42. mín: Staðan er 20:19 fyrir HK. Liðin hafa einfaldlega skipst á að skora undanfarnar mínútur. Varnarleikur liðanna er ekki eins sterkur og dregið hefur úr markvörslunni.
33. mín: Staðan er 15:14 fyrir HK. Síðari hálfleikur er hafinn og HK hefur byrjað hann af krafti. HK hefur skorað fyrstu þrjú fyrstu mörkin í síðari hálfleik og eru komnir yfir í fyrsta skipti. Nú þurfa Valsmenn að fara að setja sig í stand eins og snjall knattspyrnumaður sagði eitt sinn í frægu myndskeiði.
30. mín: Staðan er 14:12 fyrir Val að loknum fyrri hálfleik. Markaskorið hefur dreifst vel hjá Val og Valsmenn geta verið ánægðir með það. Anton Rúnarsson er þeirra markahæstur með 4 mörk en Ólafur Bjarki Ragnarsson hefur skorað 5 fyrir HK og öll þeirra utan punktalínu.
29. mín: Staðan er 13:12 fyrir Val. Óskar Bjarki Óskarsson þjálfari Vals tekur lékhlé þegar um einn og hálf mínúta er eftir af fyrri hálfleik. Ólafur Bjarki Ragnarsson var að minnka muninn í eitt mark en svo lítill hefur munurinn ekki verið síðan í stöðunni 2:1.
25. mín: Staðan er 12:9 fyrir Val. Hlíðarendaliðið heldur Kópavogsbúum í hæfilegri fjarlægð en Valsmenn hafa náð að skora fleiri hraðaupphlaupsmörk sem er dýrmætt.
15. mín: Staðan er 8:4 fyrir Val og þjálfarar HK taka leikhlé. HK minnkaði muninn niður í tvö mörk en Valsmenn hafa svarað því með tveimur mörkum úr hraðaupphlaupum. Hlynur Morthens virðist vera kominn á bragðið í marki Vals og er kominn með 5 varin skot.
10. mín: Staðan er 5:2 fyrir Val. Tæplega tíu mínútur liðnar af leiknum og HK var að skora sitt annað mark í leiknum.
5. mín: Staðan er 3:1 fyrir Val. Gestirnir byrja vel og hafa nýtt fyrstu sóknir sínar vel.






