„Spennan alltaf meiri“

Það er ævinlega hart tekist á þegar Hafnfarfjarðarliðin, FH og Haukar eigast við á handboltavellinum. stækka

Það er ævinlega hart tekist á þegar Hafnfarfjarðarliðin, FH og Haukar eigast við á handboltavellinum. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

„Spennan er alltaf meiri fyrir leikina við Hauka en aðra,“ segir Einar Andri Einarsson, annar þjálfari Íslandsmeistara FH í handknattleik karla, um væntanlega viðureign við nágrannana í Haukum í N1-deild karla í handknattleik í kvöld. Leikur Hafnarfjarðarliðanna fer fram á Ásvöllum í kvöld og verður flautað til leiks klukkan 19.30.

FH-ingar eiga harma að hefna eftir að hafa tapað tvisvar fyrir Haukum á keppnistímabilinu. Fyrst í Kaplakrika fyrir áramótin í deildinni og síðan í deildarbikarnum á milli jóla og nýárs. Að sögn Einars Andra ríkir mikil eftirvænting í Hafnarfirði vegna leiksins en ævinlega er fullt hús þegar liðin mætast, hvort heldur er á Ásvöllum, heimavelli Hauka, eða í Kaplakrika, heimavelli FH. Svo vill til að Haukar og FH leiða á ný saman hesta sína á Ásvöllum á sunnudaginn í undanúrslitum Eimskipsbikarsins.

„Okkur hungrar í sigur, á því leikur enginn vafi. Við höfum ekkert sætt okkur við tapið fyrir Haukum í deildinni á heimavelli fyrir áramótin,“ segir Einar Andri sem getur stillt upp sínu sterkasta liði í kvöldi að því undanskildu að Ragnar Jóhannsson hefur ekki jafnað sig af meiðslum sem hafa haldið honum frá keppni síðan í haust.

„Við erum fullir tilhlökkunar að mæta FH-ingum á heimavelli í kvöld,“ segir Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, sem sitja í efsta sæti deildarinnar. „Við vorum langt frá okkar besta gegn Val í síðustu viku og mætum alveg örugglega klárari í slaginn í kvöld. Leikurinn við Val í síðustu viku var þörf áminning fyrir okkur,“ segir Aron sem væntir hörkuleiks eins alltaf er þegar Hafnarfjarðarliðin leiða saman hesta sína.

„Fyrst er að leysa verkefnið í kvöld áður en við förum að leiða hugann að næsta leik við FH á sunnudaginn í bikarnum. Í kvöld munu bæði lið selja sig dýrt. Leikir Hauka og FH eru alltaf mikil skemmtun fyrir áhorfendur, það má segja að það sé veisla í Hafnarfirði næstu dagana,“ segir Aron og bætir við að kærkomið sé að eiga tvo heimaleiki við FH eftir að hafa mætt þeim einu sinni í Kaplakrika á og einu sinni í Strandgötunni á leiktíðinni.

Viðureign Hauka og FH er aðeins einn leikur af fjórum sem fram fara í N1-deild karla í kvöld. Klukkan 18.30 sækja Akureyringar liðsmenn Gróttu heim á Seltjarnarnesi en klukkustund síðan mætast HK og Valur í Digranesi og Afturelding og Fram á Varmá í Mosfellsbæ.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is