Stefán: Tapað stig, engin spurning
Ólafur Már Þórisson, omt@mbl.isStefán Baldvin Stefánsson, hornamaður Fram, átti stórleik þegar Safamýrarpiltar gerðu jafntefli við Aftureldingu á útivelli, 23:23, í 14. umferð N1-deildar karla í handknattleik. Stefán var mjög góður fyrir framan vörn Fram og skoraði svo 6 mörk á hinum enda vallarins.
Hann sagði eftirfarandi um sína frammistöðu: „Ég hefði alltaf kosið stigin tvö. Ég held samt að við getum byggt ofan á síðustu tvo leiki.“
Spurður hvort Fram hafi frekar tapað stigi en unnið sér inn stig sagði Stefán: „Þetta er tapað stig, það er engin spurning. Síðasti leikurinn í annarri umferð og þetta var mjög svekkjandi.“ Fram hafði tveggja marka forskot þegar lítið var eftir af leiknum. Stefán hafði fá svör um hvað hefði gerst á lokamínútunum enda oft erfitt að gera sér gein fyrir því á vellinum. „Ég þarf að sjá það á myndbandi.“
Um dómgæsluna, sem var æði skrautleg að þessu sinni, sagði Stefán: „Mér fannst ekkert um hana.“






