Aðalsteinn framlengir hjá Eisenach

Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Eisenach í Þýskalandi hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. stækka

Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Eisenach í Þýskalandi hefur skrifað undir nýjan samning við félagið. Ljósmynd/ Th. Levknecht

Handknattleiksþjálfarinn Aðalsteinn Eyjólfsson hefur framlengt samning sinn við þýska 2. deildarliðið ThSV Eisenach fram á mitt næsta ár með möguleika á eins árs viðbót þaðan í frá verði báðir aðilar sáttir við stöðu liðsins á þeim tímapunkti.

Aðalsteinn tók við þjálfun ThSV Eisenach í erfiðri stöðu á vormánuðum 2010. Undir hans stjórn tryggði liðið sér sæti í sameinaðri 2. deild fyrir rúmu ári. Nú er ThSV Eisenach um miðja 2. deildina með 19 stig að loknum 19 leikjum.

Áður en Aðalsteinn tók við þjálfun ThSV Eisenach var hann um skeið þjálfari Kassel. Einnig stýrði hann kvennaliðum ÍBV og Stjörnunnar hér á landi með góðum árangri áður en hann fór til Þýskalands.

ThSV Eisenach mætir efsta liði 2. deildar, GWD Minden á heimavelli á morgun.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is