„Dómgæslan hneyksli“

Einar Jónsson, þjálfari Fram. stækka

Einar Jónsson, þjálfari Fram. mbl.is/Eggert

Morgunblaðið Ólafur Már Þórisson omt@mbl.is

Það var mikil dramatík á lokamínútunum þegar Afturelding og Fram skildu jöfn 23:23 í N1-deild karla í handknattleik. Framarar höfðu yfir 22:20 þegar skammt var eftir en Afturelding náði að jafna metin þegar Hilmar Stefánsson fyrirliði liðsins skoraði síðasta markið níu sekúndum fyrir leikslok úr vítakasti.

Einar Jónsson þjálfari Fram var hreint út sagt öskuvondur eftir leikinn út í dómaraparið Gísla Jóhannsson og Hafstein Ingibergsson. „Dómgæslan var hneyksli í 30 mínútur í seinni hálfleik. Það er ófyrirgefanlegt hvernig dómgæslan var í seinni hálfleik. Það gekk svo langt að eftirlitsmennirnir voru farnir að hlæja við tímavarðaborðið. Afturelding má þakka dómurunum fyrir stigið,“ sagði Einar og sagðist geta nefnt mörg dæmi sem hann og gerði.

Sjá nánar umfjöllun um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is