Flugið reyndist eina vandamálið

Bjarni Fritzson skoraði 12 mörk fyrir Akureyri. stækka

Bjarni Fritzson skoraði 12 mörk fyrir Akureyri. mbl.is/Golli

Það má segja að einu vandræðin sem Akureyringar hafi lent í í sigurför sinni á Seltjarnarnesið í gærkvöldi hafi verið þau að þeir gátu ekki flogið heim aftur eftir níu marka sigur á Gróttu, 28:19, vegna veðurs. Grótta komst aldrei yfir í leiknum, munurinn var orðinn fjögur mörk eftir korters leik og varð aldrei minni en svo í seinni hálfleiknum, og Akureyringar nældu sér þar með í tvö skyldustig í baráttunni um að enda meðal fjögurra efstu liða í deildinni og komast þar með í úrslitakeppnina.

„Þetta var ótrúlega mikilvægur leikur fyrir okkur því það er algjört grundvallaratriði að við vinnum liðin fyrir neðan okkur. Það er ekki eins og Grótta hafi ekki gert öðrum liðum skráveifu. Valsararnir töpuðu stigi hérna og Framararnir voru heppnir gegn þeim í síðustu umferð, og þetta var bara mjög erfiður leikur,“ sagði Bjarni Fritzson sem skoraði 12 mörk fyrir Akureyringa í gær, þar af sex af vítalínunni þar sem hann sýndi mikið öryggi.

Sjá nánar umfjöllun um leikinn í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is